Um okkur
.jpg)
Fiska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja var opnað árið 1964 og er því elsta safn sinnar tegundar á landinu. Vestmannaeyjabær sá um rekstur safnsins allt þar til að Þekkingarsetur Vestmannaeyja tók við rekstrinum í janúar 2010. Á þeim tímamótum var nafni safnsins breytt í "Sæheimar".
Hægt er að nálgast bækling um safnið á PDF formi hér.
Í náinni framtíð stendur til að stækka safnið til muna og samtvinna við rannsóknir í sjávarlíffræði í samstarfi við stofnanir og vísindamenn innan Þekkingarseturs Vestmannaeyja.
Sími á skiptiborði Þekkingarsetursins: + 354 481 1111
Sími á skrifstofu Sæheima: + 354 481 1997
Farsími: +354 863 8228
Hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um rekstraraðila safnsins á heimasíðu Þekkingarsetursins sem er: http://www.setur.is