Fréttir
18.11.2011
Skógarsnípa finnst í Vestmannaeyjum
Hringt var til Fiskasafnsins og látið vita af óvenjulegum fugli sem lægi dauður við Sólhlíð 19. Reyndist það vera skógarsnípa, sem er náskyld hrossagauk en talsvert stærri og litfegurri.
Skógarsnípa á heimkynni sín í barrskógum nágrannalanda okkar og flækjast hingað til lands árlega. Fyrir nokkrum árum var staðfest að skógarsnípa hafi orpið í stafafuruskógum í Skorradal. Líklegt má telja að þær hafi orpið hér mun oftar en erfitt er að koma auga á þær í varpi því þær ná að felast mjög vel á skógarbotni. Þar falla þær vel inn í umhverfið og eru ekki eins áberandi og skógasnípan á þessari mynd, sem Hrafn Óskarsson skógarvörður og ljósmyndari tók um vetur í Fljótshlíðinni.

Fréttir
Nýtt útlit og sumaropnun
16.maí.2012
Fundu hnýsu í Skansfjöru
17.apríl.2012
Lifandi loðna á Fiskasafninu
23.febrúar.2012
Fótboltastrákar í heimsókn
20.desember.2011